You are here

Fjölskynja nálgun

Fjölskynja kennsluaðferð

Fjölskynja nálgun er kennsla sem byggist á því að nemandinn vinni með viðfangsefnið út frá sem flestum skynáreitum. Dæmi:  

Gegnum sjón - skoði markvisst form bókstafanna og læri hvernig þeir eru skrifaðir. Gagnlegt getur verið að skoða í spegli hvernig hljóð ákveðinna bókstafa  myndast með talfærunum, einkum ef erfitt er að muna bókstafinn.

Gegnum heyrn - hlusti á og muni heiti bókstafa og  hljóð þeirra

Gegnum hreyfingu- búa stafinn til t.d. skrifa í loftið, mála á stórt blað o.s.frv.

Gegnum snertingu - að leira stafinn, að þreifa á formi bókstafsins með lokuð augu, eða bundið fyrir augu

Galdurinn felst í því að vinna samtímis með alla skynþættina og þannig getur kennslan til dæmis verið með eftirfarandi hætti:

  • Segja heiti stafanna og hljóð þeirra um leið og þreifað er á þeim
  • Tengja hljóð stafanna saman og lesa orð og setningar
  • Lesa stuttar sögur sem innihalda aðeins þá stafi/hljóð sem búið er að kenna
  • Skrifa orð sem koma fyrir í sögunum
  • Skrifa stutta sögu með eigin orðum

Góðir lesarar eiga auðvelt með að læra bókstafina og þeir kunna þá yfirleitt af mikilli nákvæmni mjög fljótt. Nemendur með lesblindu eiga oft erfitt með að læra bókstafina af fullkomnu öryggi. Þess vegna er afar mikilvægt að vinna með bókstafina út frá mismunandi skynleiðum til þess að auðvelda nemendum að muna heiti þeirra og hljóð, hvernig þeir eru skrifaðir og hvernig þeir myndast. Upprifjun og endurtekning er mjög mikilvæg og þyrfti að vera fastur liður í lestrarkennslu nemenda með dyslexíu.

© Steinunn Torfadóttir

Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer