You are here

Hljóðbækur

 

Hljóðbókasíðan, hlusta.is

Hljóðbókasíðan er vefsíða á vegum Skólavefsins.is, en þar er að finna  fjölbreytt úrval af hlustunarefni sem hægt er að hlusta á í tölvunni, hlaða inn á iPod eða skrifa inn á geisladiska. Sjá nánar á www.hlusta.is

Námgagnastofnun - Niðurhal á námsefni

Námsgagnastofnun er nú hætt að gefa út hljóðbækur, en hægt er að hlaða niður upplestri námsbóka öllum að kostnaðarlausu af vefsíðu þeirra. Sjá nánar á vef Námsgagastofnunar http://nams.is/hljodbaekur/

Hljóðbækur geta verið gagnleg hjálpartæki fyrir fólk með lestrarerfiðleika bæði til að auka lestrarfærni og við nám í öðrum námsgreinum.  Til er mikið safn hljóðbóka (á diskum eða snældum) sem hægt er að kaupa í bókabúðum eða fá lánaðar í skólum eða á bókasöfnum. Nemendur í framhalds- og grunnskólum geta einnig fengið lánaðar bækur á Blindrabókasafninu gegn vottun um greiningu.  Nemendur grunnskólans eiga kost á að fá kennslubækur á diskum/snældum þar.

Notkun og gagnsemi hljóðbóka við þjálfun á lestri

Við lestrarþjálfun þarf nemandi að fylgja upplestri eftir um leið og hann hlustar. Því  þarf lesefnið að vera  í samræmi við getu nemanda.

Notkun hljóðsnælda getur stuðlað að

  • auknum hraða í lestri og réttum áherslum,
  • samhæfingu heyrnar, augna og varahreyfinga/framburðar
  • því að nemendur komist lengra  í bókum, stundum nægilega langt til að fá áhuga og hvata til að halda áfram
  • betri einbeitingu og hlustun
  • auknum orðaforða                                                                                                 

                                                           (Höien & Lundberg, 2000)

Ef nemendur eru óvanir hljóðbókum þurfa þeir að byrja að hlusta stutta stund í einu og reyna að fylgja upplestri eftir. Best er að skipta lesefni niður í kafla, hlusta á stutta kafla í einu og vinna síðan úr þeim skriflega, munnlega eða hlýða sér yfir í huganum. Sjá einnig um hljóðbækur á vef Námsgagnastofnunar (www.nams.is)

Daisy bækur

Daisy er skammstöfun fyrir Digital Audiobased Information System. Þetta eru hljóðbækur sem byggja á stafrænni tækni. Bækurnar eru á geisladiskum sem rúma mun meira en snældur og auðvelt er að finna leskafla eftir efnisyfirliti og hoppa inn hvar sem er í textanum. Nota þarf sérstakan spilara til að lesa bækurnar en hann tekur bæði venjulega geisladiska og diska með samþjöppuðu efni (mp3). Samþjöppun skránna er það mikil að bók sem var á 12 geisladiskum rúmast nú á einum diski. http://www.blind.is/Frettir/nr/472 (sótt 31.okt. 2007)

© Helga Sigurmundsdóttir

Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer