
Með HLJÓM-2 –finnum við börnin í áhættuhópnum
HLJÓM-2 er íslenskt skimunartæki til að athuga hljóðkerfisvitund barna áður en þau hefja grunnskólagöngu. Markmið með hönnun HLJÓM-2 var að finna börn sem gætu átt í erfiðleikum með að takast á við væntanlegt lestrarnám. HLJÓM-2 var gert fyrir leikskólakennara sem eru að vinna með elstu börn leikskólans. Höfundar HLJÓM-2 höfðu það að leiðarljósi að með því að leggja HLJÓM-2 fyrir gætu leikskólakennarar unnið markvisst með áhættuhópinn og komið þannig í veg fyrir hugsanlega lestrarerfiðleika.
HLJÓM-2 er skimun við upphaf síðasta árs í leikskóla og á að leggja fyrir öll börn í elsta árganginum. Skimunartækið er grundvallað á niðurstöðum úr langtímarannsókn á tengslum hljóðkerfis- og málmeðvitundar við lestrarfærni en höfundar unnu að þessari rannsókn á árunum 1996-2002. Hópur barna (n= 267) fæddur 1991 og 1992 var athugaður við fimm ára aldur og síðan fylgt eftir fram að samræmdum prófum í fjórða bekk. Við fimm ára aldur var skoðaður málþroski barnanna og gerð ítarleg athugun á hjóðkerfisvitund þeirra og auk þess veittu foreldrar upplýsingar um þroska barnanna. Lestur barnanna var athugaður í lok fyrsta og annars bekkjar og enn fremur fékkst leyfi til að athuga niðurstöður á samræmdu prófi í íslensku í fjórða bekk. Niðurstöður voru þær að málþroskamælingar við fimm ára aldur spáðu fyrir um hvernig börnunum gekk að læra að lesa og einnig hvernig þeim gekk á samræmdum prófum í fjórða bekk. Sérstaklega höfðu hljóðkerfisvitundarþættir hátt forspárgildi, en fylgni HLJÓM við lestur í fyrsta bekk og öðrum bekk var marktæk. Fylgni HLJÓM við einkunnir á samræmdu prófi fjórum árum seinna var einnig marktæk r = 0.60 (p < 0.001). Um 61% barnanna sýndi svipaða getu miðað við jafnaldra á prófum á hljóðkerfisvitund við fimm ára aldur og á samræmdu prófi í íslensku í fjórða bekk. Þessar niðurstöður eru í takt við niðurstöður erlendra rannsókna en þær hafa sýnt fram á sterk tengsl milli hljóðkerfisvitundar og síðari lestrarfærni.
Með styrk frá Menntamálaráðuneytinu (árið 2001) var HLJÓM stytt, valdir þeir þættir út sem spáðu best fyrir um lestur og aldursviðmið aðlöguð að þörfum leikskólans. Þannig varð til HLJÓM-2 sem var lagt fyrir 1540 börn víðsvegar um landið veturinn 2001 til 2002. HLJÓM-2 er ætlað elsta aldurshópnum í leikskólanum eða börnum á aldrinum 4.9 ára til 6.1 árs. Þegar hafa um 800 leikskólakennarar (eða sambærilegt fagfólk) innan leikskólans öðlast réttindi til að leggja fyrir HLJÓM2.
© Jóhanna Einarsdóttir
Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer